Vök sendir frá sér nýtt lag

Vök

Vök

Hljómsveitin Vök hefur sent frá sér nýtt lag af væntanlegri EP plötu sinni. Lagið nefnist If I Was og er það fyrsta lagið sem við heyrum af EP plötunni Circles sem kemur út 15. maí.

Vök er skipuð Andra Má Enokssyni, Margrétri Rán Magnúsdóttur og Ólafi Alexander Ólafssyni.

Upptökur og upptökustjórn var í höndum hljómsveitarmeðlima en Biggi Veira oftast kenndur við GusGus sá um hljóðblöndun og hljómjöfnun.

Vök vakti mikla athygli þegar þau komu fyrst fram á sjónarsviðið og sigruðu Músíktilraunir 2013. Plötufyrirtækið Record Records gerði samning við sveitina um útgáfu á EP plötunni „Tension“ sama ár. Platan hefur hlotið mikil lof bæði hér heima sem og erlendis. Melódísk raftónlist með saxafónsveiflum þykir óvenjuleg og frumleg blanda en um leið hefur Vök þó verið líkt við sveitir á borð við Air, Portishead og The xx.

Vök kom fram á Eurosonic tónlistarhátíðinni nú í janúar þar sem Ísland var fókusþjóð hátíðarinnar. Vök er á lista yfir þau bönd sem fengu flestar bókanir í kjölfarið og er líklegt að þau komi fram á yfir 10 tónlistarhátíðum víðsvegar um heiminn í sumar.

Mörg af stærstu tónlistarbloggum erlendis hafa spáð sveitinni góðu gengi, þ.á.m. New York Times, Drowned In Sound, Line of Best Fit, Clash Magazine og Record of the Day.

Það er Record Records sem gefur út á Íslandi.

Hér má sjá myndband við lagið