Selfoss sat eftir í stjörnuryki

Roberta Stropé kemur á ferðinni og skorar eitt af sex mörkum sínum í dag. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Selfoss fékk Stjörnuna í heimsókn í Olísdeild kvenna í handbolta í dag. Stjörnukonur reyndust sterkari og úrslitin í Set-höllinni urðu 24-33.

Stjarnan leiddi allan leikinn, gestirnir skoruðu tvö fyrstu mörkin og juku forskotið jafnt og þétt. Staðan var 6-10 um miðjan fyrri hálfleikinn og 11-16 í hálfleik.

Stjarnan byrjaði betur í seinni hálfleiknum og fljótlega var munurinn kominn upp í tíu mörk. Stjarnan bætti enn í um miðjan seinni hálfleikinn og náðu mest fjórtán marka forskoti en Selfyssingar skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins og minnkuðu muninn í níu mörk, lokatölur 24-33.

Katla María Magnúsdóttir var markahæst Selfyssinga með 7/3 mörk, Roberta Stropé skoraði 6, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 3, Ásdís Þóra Ágústsdóttir, Rakel Guðjónsdóttir og Tinna Sigurrós Traustadóttir 2 og þær Inga Sól Björnsdóttir og Adela Jóhannsdóttir skoruðu 1 mark hvor.

Cornelia Hermansson varði 14 skot í marki Selfoss og var með 31% markvörslu.

Selfoss er í 7. sæti deildarinnar með 2 stig en Stjarnan er í 2. sæti með 12 stig.

Fyrri greinFlutti búferlum til að taka við pósthúsinu á Selfossi
Næsta greinSnæfríður bætti tólf ára gamalt met