Þrír ökumenn undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan á Selfossi handtók þrjá ökumenn í síðustu viku vegna gruns um að vera undir fíkniefnaáhrifum við akstur.

Smávegis af fíkniefnum fundust í fórum tveggja þeirra.

Í dagbók lögreglunnar kemur einnig fram að aðfaranótt sunnudags var brotin rúða í húsi Hvítasunnusafnaðarins við Austurveg 40 á Selfossi. Lögreglan biður þá sem veitt geta upplýsingar um það mál að hringja í síma 480 1010.

Fyrri greinFimmvörðuháls öllum fær í sumar
Næsta grein30 milljónir í sunnlenska menningu