Jakob Veigar gefur Hveragerðisbæ málverk

Jakob Veigar afhendir Aldísi Hafsteinsdóttur bæjarstjóra og Jóhönnu M. Ragnarsdóttir, menningar- og frístundafulltrúa, listaverkið. Ljósmynd/Hveragerðisbær

Jakob Veigar Sigurðsson, myndlistarmaður, hefur fært Hveragerðisbæ að gjöf fallegt málverk sem þakklæti fyrir afnot af húsnæðinu að Breiðumörk 21 en þar hefur hann haft vinnuaðstöðu undanfarnar vikur.  Myndin mun prýða fundarherbergi bæjarstjórnar.

Húsnæðið sem er við aðalgötu bæjarins keypti Hveragerðisbær á vormánuðum og samþykkti bæjarráð að Jakob Veigar gæti haft þar aðstöðu til listsköpunar um tíma.

Jakob Veigar, sem er uppalinn í Hveragerði,  býr nú í Vínarborg. Hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með MA gráðu árið 2016 og úr Vienna Academy of Fine Arts með MA gráðu árið 20198. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og sett upp einkasýningar út um allan heim. Núna er hann með sýningu í Gallerý Fold í Reykjavík þar sem áhugasamir geta kynnt sér verk hans.

Fyrri greinHjáleiðin greiðfær en Rauðholtið stíflað
Næsta greinTvær rafhleðslustöðvar teknar í gagnið