Chambrelan sagt upp störfum

Stjórn Körfuknattleiksfélags FSu tók þá ákvörðun í dag að aðalþjálfari félagsins, Eloy Doce Chambrelan, myndi hætta störfum.

Í tilkynningu frá félaginu segir að gengi meistaraflokks karla í 1. deild Íslandsmótsins hefur ekki verið samkvæmt væntingum og þrátt fyrir ákveðnar breytingar og heiðarlegar tilraunir af allra hálfu til að snúa gengi liðsins við hefur það ekki tekist.

Fyrri greinHvergerðingar kaldir í 3. leikhluta
Næsta greinÞór tapaði í Keflavík