Friðartré gróðursett í Hveragerði

Friðartré var gróðursett í Hveragerði síðastliðinn laugardag í tengslum við Friðarhlaupið sem nú fer um landið.

Fyrir valinu varð hengiaskur sem mun í framtíðinni mynda glæsilega trjákrónu sem notalegt verður að sitja undir. Bæjarstjóri boðaði að þar yrði síðar settur bekkur svo gestir geti notið friðar í garðinum.

Það var Guðmundur Þór Guðjónsson, formaður bæjarráðs sem gróðursetti tréð með dyggri aðstoð viðstaddra.

Fyrri greinÆgir og Hamar töpuðu
Næsta greinSönghátíð á Klaustri um helgina