Baldur gaf leikborð á HSu

Baldur Róbertsson eigandi BR flutninga kom færandi hendi á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á dögunum og gaf HSu leikborð með áföstum leikföngum.

Gjöfina gaf Baldur m.a. í tilefni þess að fyrirtæki hans er orðið þriggja ára. Einnig er hann faðir ungra barna sem þyrftu af og til á þjónustu HSu að halda og þyrftu að bíða í biðstofum stofnunarinnar.

Hann sá því leik á borði að létta öllum börnunum biðina, sem gæti stundum verið erfið þegar ungviðinu liði kannski ekki sem best og biðin gæti orðið löng.

Fyrri greinSkaftárhreppur sparar með varmadælum
Næsta greinGæsluvarðhalds krafist yfir mönnunum