Stutt í hjólaleið frá höfuðborgarsvæðinu að flugstöðinni
Vegagerðin hefur lagt um 2 milljarða króna í uppbyggingu hjóla- og göngustíga á undanförnum áratug og gert ráð fyrir um 150-350 milljóna fjárveitingum í þennan málaflokk árlega á komandi árum, en við bætist svo fjárveiting sveitarfélaganna, sem greiða helming kostnaðar á móti.
Þetta kom fram á morgunverðarfundi Vegagerðarinnar í morgun. Þar kom einnig fram að á Suðurnesjum hafi verið lagðir um 25 kílómetra stígar á undanförnum árum, sá lengsti meðfram Grindavíkurvegi, 12 kílómetrar en auk þess hafa verið lagðir stígar í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum.
Þá kom fram á fundinum að stefnt sé á að tengja stígakerfi Innri – Njarðvíkur við stíginn við Grindavíkurveg og svo þann stíg við stíg sem liggur meðfram Vogavegi. Þá verður lagður stígur frá Hafnarfirði að Álverinu í Straumsvík.
Einnig kom fram á fundinum að nokkuð stutt væri í að góð hjólaleið verði komin frá höfuðborgarsvæðinu að flugstöðinni.