Nýjast á Local Suðurnes

Rannsaka dreifingu á nektarmyndum og fjársvik á hinum ýmsu Facebook-síðum

Árið 2018 var annasamt hjá lögreglunni á Suðurnesjum þegar kom að netglæpum, en nítján slík mál komu upp hjá embættinu samkvæmt ársskýrslu lögreglunnar. Netglæpir eru, í víðustu skilgreingu orðsins, þau brot sem framin eru með tilstuðlan internetsins.

Þrjú málanna sem um ræðir eru svokallaðir svikapóstar (e: BEC -Business email compromise) þar sem óprúttnir aðilar hafa sent tölvupósta í nafni yfirmanns fyrirtækis til starfsmanns, sem hefur aðgang að fjármálum viðkomandi fyrirtækis, í þeim tilgangi að reyna að svíkja út fé.

Ellefu mál sem varða fjársvik á netinu voru tilkynnt, meðal annars á bland.is eða á hinum ýmsu Facebook síðum. Eitt mál varðar áreiti á samfélagsmiðlum og jafnframt komu upp fjögur mál sem varða dreifingu á nektarmyndum.